31.mar. 2020 -
Vegna neyðarstigs almannavarna af völdum kóróna veirunnar, COVID-19 verður skrifstofa FOSS lokuð frá og með miðvikudeginum 1. apríl fyrir öðrum en starfsfólki. Þetta er gert í ótilgreindan tíma vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Símtölum og tölvupóstum verður svarað eins og hægt er og einnig er hægt að setja gögn í bréflúguna á skrifstofunni.