FOSS í dag
Tilgangur með stofnun félagsins var og er enn í dag að vera í forsvari í kjarasamningum og öðrum málum er lúta að réttindum og skyldum félagsmanna okkar.
Starfsfólk skrifstofu FOSS sinnir fjölbreyttum verkefnum og hefur það að markmið að veita félagsfólki góða þjónustu. Starfsfólk gætir hagsmuna félagsmanna og erum ávallt tilbúin að veita aðstoð og ráðgjöf um þau málefni sem koma inn á borð félagsins. Málefnin eru fjölbreytt enda starfar félagsfólk okkar við ólík störf á fjölmörgum vinnustöðum í þeim 14 sveitarfélögum sem félagssvæði FOSS nær yfir.
Skrifstofa FOSS er staðsett að Eyravegi 27 á Selfossi. Þar fylgir starfsfólk eftir ákvörðunum stjórnar félagsins og sér um skipulagningu aðalfunda, trúnaðarmannafunda, sem og funda orlofsnefndar og fræðslunefndar.
Félagsfólki stendur til boða fjölbreytt þjónusta og ráðgjöf á sviði kjaramála, réttinda í sjóðum, fræðslumála og orlofsmála, svo eitthvað sé nefnt. Þá vinnur starfsfólkið að margvíslegum verkefnum sem tengjast kjarasamningum og réttindagæslu félagsmanna.
Í dag telur FOSS um 1400 félagsfólk og 9 formenn hafa starfað fyrir félagið.
Lögfræðiþjónusta
Í september 2015 var samið við Pacta lögmenn á Selfossi um lögfræðiþjónustu fyrir félagsmenn FOSS. Félagsfólki er með þeim hætti tryggð afsláttarkjör á lögfræðiþjónustu auk þess sem það fær fyrsta viðtal við lögmann sér að kostnaðarlausu, hvort sem málefnið varðandi kjara- og réttindamál eða einkahagi.
Hægt er að hafa samband við Pacta lögmenn í síma 440-7900 eða sudurland@pacta.is og panta frítt viðtal.