09.sep. 2020 -
Dale Carnegie fyrir félagsmenn FOSS
Okkar farsæla samstarf heldur áfram og nú verður næsta námskeið haldið
dagana 9. -11. október. Undanfarið hafa færri komist að en vildu svo að gott er
að skrá sig tímanlega.
Markmið námskeiðsins eru:
- Efla sjálfstraust til að láta til sín taka og styrkja sig í starfi
- Bæta samskiptahæfni til að byggja traust, auka samvinnu og hafa jákvæð
áhrif á starfsumhverfið - Auka tjáningarhæfni til að tjá sig af lipurð og háttvísi, líka undir álagi
- Bæta viðhorf og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og álag
- Efla leiðtogafærni til að geta veitt öðrum innblástur
Hvenær: Föstudaginn 9. október til sunnudagsins 11. október frá kl. 8.30-16.30
Hvar: Námskeiðið verður haldið í Grænumörk, sal félags eldri borgara á Selfossi
Fyrir hverja: Félagsmenn FOSS stéttarfélags
Verð: Fullt verð er 159.000 en hlutur félagsmanna FOSS er 10.000 kr. ( Þeir sem
skrá sig geta ekki fengið gjaldið endurgreitt nema hætt sé við með a.m.k tveggja
vikna fyrirvara)
Skráning á námskeiðið fer fram í síma 555 7080.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, unnurm@dale.is, s. 698-4130