Dale Carnegie fyrir félagsmenn FOSS
Hella- Hvolsvöllur og nágrenni
Foss og Dale Carnegie halda samstarfinu áfram og nú færum við okkur til þeirra félagsmanna sem eru í nágrenni Hellu og Hvolsvallar. Námskeiðið verður haldið á Goðalandi, Fljótshlíð og fer fram dagana 9.-11. apríl.
Markmið námskeiðsins eru:
- Efla sjálfstraust til að láta til sín taka og styrkja sig í starfi
- Bæta samskiptahæfni til að byggja traust, auka samvinnu og hafa jákvæð áhrif á starfsumhverfið
- Auka tjáningarhæfni til að tjá sig af lipurð og háttvísi, líka undir álagi
- Bæta viðhorf og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður og álag
- Efla leiðtogafærni til að geta veitt öðrum innblástur
Hvenær: Föstudaginn 9. apríl, laugardaginn 10. apríl og sunnudaginn 11. apríl frá kl. 8.30-16.30. Námskeiðið verður haldið í Goðalandi, Fljótshlíð.
Verð: Fullt verð er 159.000 en hlutur félagsmanna FOSS er 10.000 kr. ( Þeir sem skrá sig geta ekki fengið gjaldið endurgreitt nema hætt sé við með a.m.k tveggja vikna fyrirvara).
Skráning á námskeiðið fer fram á https://island.dale.is/einstok-namskeid/
og í síma 555 7080. Vinsamlegast setið FOSS í skýringu við skráningu.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Magnúsdóttir, unnurm@dale.is, s. 698-4130