25.nóv. 2026 -
Jólaföndur FOSS 2026
FOSS býður félagsfólki sínu upp á tvö námskeið hjá Horninu Creative Studio.
🕯️ 30. nóvember kl. 18:00 verður boðið upp á kertamálun
🎨 3. desember kl. 18:00 verður boðið upp á málun á jólaskrauti úr gifsi
Takmarkað pláss er í boði en hámarksfjöldi þátttakenda er 10–12 manns á hvoru námskeiði.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á foss@foss.bsrb.is eigi síðar en 30. nóvember.
Taka þarf fram í tölvupóstinum hvort námskeiðið þið viljið sækja.