Rakel Þórðardóttir
FOSS stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnir hér með að kjör til stjórnar og nefnda félagsins fer fram á aðalfundi félagsins þann 5. maí 2026.
Stjórn félagsins skipa 7 félagar, formaður og sex meðstjórnendur er skulu kosnir úr hópi félagsmanna til fjögurra ára í senn. Formaður skal kosinn sérstaklega en sex meðstjórnendur skulu kosnir til fjögurra ára, þrír og þrír á víxl.
Stjórnin skiptir með sér verkum og kýs varaformann og ritara úr sínum hópi.
Allar tillögur í stjórnir og nefndir FOSS skulu vera skriflegar og berast í tölvupósti til FOSS - foss@foss.bsrb.is eigi síðar en 1 viku fyrir aðalfund, eða til og með 27. apríl 2026.
Félagsmenn skila inn tilnefningu í stjórn félagsins og verða minnst 25 félagsmenn að standa að baki hverrar tilnefningar.
Tilnefningu skulu fylgja nafn viðkomandi, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.
Tilnefningar sem berast eftir 27. apríl teljast ógildar.