28.maí 2025 -
Næsti fundur fræðslunefndar FOSS
Næsti fundur fræðslunefndar FOSS verður 3. júní. Á fundinum verða teknar fyrir þær umsóknir um nám eða námskeið sem tengjast ekki starfi umsækjanda.
Ef þú varst í námi eða sóttir námskeið sem tengist ekki starfi þínu fyrir sveitarfélag eða ríki þá er tækifæri til að fylla út umsókn um styrk fyrir fundinn.
Þau göng sem þurfa að fylgja umsókninni eru reikningur frá þeim er bjóða upp á námið eða halda námskeiðið einnig staðfesting á greiðslu, úr heimabanka.
Auk þess er hægt að skila inn staðfestingu á námsvist frá framhaldsskólum og háskólum.
Hægt er að sækja um á heimasíðu FOSS undir Styrkir og sjóðir.
https://foss.bsrb.is/styrkir-og-sjodir/
Starfsfólk FOSS.